BALL!!
Já gott fólk, ballið er í kvöld... "Í Svörtum Fötum ballið". Það held ég að það verði nú gaman. Þarf reyndar aðeins að jafna mig í rassinum fyrir ballið. Fór nefnilega á þessa þeysireið á hestinum Rosta að ég er hálf aum. En það lagast. Fór í reiðtúr með Ingveldi og Ástu litlu, sem er bæ ðe vei hetjan mín. Hún er 11 ára gömul og harkan í henni, ég hef barasta ekki séð annað eins. Samt er hún borgarbarn. Bráðum verð ég eins fær og hún...
Annars þá ætla ég bara að taka restina af deginum í rólegheitum, slaka aðeins á fyrir ballið. Og já ef þið vissuð það ekki þá er ég komin með nýtt svona jurtatattoo. Ef þið hafið lesið bloggið hans Hrannars þá voruð þið væntanlega búin að komast að því. En þetta var ekki eins og hann segir og hann er EKKI betri en ég, og hana nú......